Hráefni
Við hjá Ráðlögðum dagskammti leggjum metnað okkar í að vinna allt hráefni frá grunni, notum eingöngu fyrsta flokks hráefni. Kartöflur beint frá bónda, sérvalinn ferskur fiskur, salat, grænmeti og ávextir það ferskasta á hverjum tíma, kjöt ferskt, heimabakað brauð, sósur og súpur unnið frá grunni.
Ráðlagður Dagskammtur leggur áherslu á ferskleika og gæði, Þess vegna notum við eingöngu íslenskan kjúkling frá Ísfugl í okkar matargerð.